16.2.2019 | 08:44
Glæsilegur Herramaður : BILLIONAIRE
Hann er glæsilegur þessi herramaður á besta aldri uppáklæddur í línu PHILLIP PLEIN : BILLIONAIRE , en þar er markhópurinn karlmenn á góðum aldri og hefur uppátæki Phillip Plein vegnað vel og hefur frammi tískusýningar á hverju ári í Mílanó .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2019 | 02:38
Fyrirsætinn YURI PLESKUN í vetrarlínu RAGS AND BONE´S fyrir 2019
Eftir að hafa haft framkomu á herratískuviku New York með John Elliot prýðir fyrirsætinn YURI PLESKUN nú auglýsingaherferð tvíeykisins RAGS and BONE´S frá borginni fyrir komandi vetur 2019 . Fatnaðurinn er í anda vinnufatnaðar með afslöppuðum ; hreinum og beinum stílfæringum .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2019 | 07:16
Ljósmyndaverk sem væri klassískt málverk
Hér má sjá ljósmyndaverk eftir listakonuna MARTA MORETTO sem kallast : Eternity - Maternity ; en hún er einn listamanna SEE.ME gallerísins . Verkið er líkt og sígilt málverk í ljósmynd en hún hefur unnið seríu með myndum ólettra kvenna og með nýbura í klassísku umhverfi . Sjá má seríuna í heild sinni á heimasíðu listakonunnar .
13.2.2019 | 12:30
Eru iðnaðarþjóðir heimsvæðingarinnar farnar að ofgera gæðum ?
Þess meiri sem gæði vöru eða framleiðslu á að heita þess meira borgarðu fyrir vöruna . En öllu er hægt að ofgera . Frágangur og þessi gæði sumrar framleiðslu með iðnaðarþjóðum er orðinn svo ´ solid ´ að það er rétt aðeins um of . Þýskir bílar eru einir þeir dýrustu á markaðnum en að mínu viti eru þeir orðnir ofhlaðnir og eru þungir að vega og í akstri . Framleislan er að sjálfsögðu sem vélvædd róbotum sem nokkuð getur orðið en ég hef verið vitni að því að af dýrasta og heita vandaðasta nýjum þýskum jeppa sem gerist á markaði hreinlega hrundi undan lega og lá laus á götunni . Þá er ítalskur tískufatnaður sá allra dýrasti í þeim flokki og að heita sá vandaðasti . Sama má segja þar ; frágangur er allur orðinn svo hnökralaus að flíkin er næsta hnýtt orðinn um þann sem klæðist henni . Hér má sjá myndir af þessarri ofhlöðnu framleiðslu og takið eftir að klæðnaðurinn sem fyrirsætann Freja Beha klæðist hefur næsta fasistískt yfirbragð .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2019 | 12:18
ROMANOV´S keisarafjölskyldan fyrirmynd í nýjustu línu LINDER
Hönnuðurinn Kirk Millar notar sögu Rússnesku keisarafjölskylduna ; hefðir og klæðaburð sem innblástur fyrir nýjustu línuna haust vetur 2019.20 sem hann hannar fyrir LINDER
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2019 | 05:41
ER LÍF Á ÖÐRUM HNÖTTUM ?
Ljós er Líf . Getur ferðast um himingeiminn á ógnarhraða - frá jörðu útí himingeiminn á ljóshraða ; til annarra sólkerfa - til annarra hnatta . Hversvegna skyldi ekki ljós lífs ; sem jafnvel er utan og óháð efnisheimi geta komið frá jörðinni þar sem það hefur orðið til ; vera frá hnettinum jörðinn er að ferðast til annarra hnatta . Er glimt af ljósi sem birtist eitt augablik í kvöldmyrkrinu en er svo horfið ; útí himinngeiminn .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2019 | 08:42
NEW YORKER STYLE : HELGI ÖGRI
Tískuvika Herra fyrir haust og vetur 2019.20 hefur staðið yfir í New York . Þetta þótti eitt besta Street Style lookið meðal gesta á strætum borgarinnar meðan sýningar stóðu yfir .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2019 | 07:04
Sýningin BEIRÚT - - á Listasafni Íslands
Það er mikill fengur að sem nokkrar konur hafa færst í fang að setja upp sem farandsýningu með Líbönskum listamönnum frá Beirút um Norðurlönd sem endar nú hér á Íslandi . Þar færa þær okkur menningu og listir framandi heima ; að þessu sinni Mið-Austurlanda og víkkar það heimssýnina að líta slíka list augum og veitir okkur innsýn í menningarheiminn . Áberandi er hvað framsetning sýningarinnar er skýr og tæknin nýtt sér af fremsta megni einsog almennt er að gerast í myndlistarheimi svosem að myndverk séu sett fram á flatskjám . Þó er ekki sagt skilið við hefðirnar og mátti sjá fallegar myndir blóma í akvarell ; en múhameðstrúarmenn hafa sérstaka sýn um tákngervingu flórunnar gjarnan með skírskotun í hið femíníska eðli . Það sem vakti mesta athygli á sýningu held ég sé óhætt að segja að sé myndbandsverk þar sem sjá má friðsæla ásýnd þeirra sem eru sofnaðir þ.e.a.s látinna en slík myndgerving hefur í gegnum aldir tengst trúariðkan bæði í Afríku og eins meðal Indjána . Voru hinir látnu líkt og smurðar múmíur horfnar til annarra heima . Þá var lifandi uppákoma trompetleikara við opnunina sem fór um sali og blés sinn lúður .
7.2.2019 | 19:12
Ásakanir kvenna á hendur karlmönnum : ´ HVER Á FRUMKVÆÐIÐ ? ´
Ég var samtíma Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem seinna varð borgarstjóri í Reykjavík og framámaður í Íslenskum stjórnmálum á námsárum í Kaupmannahöfn . Var hún þá þegar orðinn mikil kvenréttindakona enda seinna ein af þeim sem voru í forvígi um Kvennalista og hafði hún títt að orði að öndvegisspurningin væri : ´ Hver á frumkvæðið ? ´ . Nú er næsta að sé orðinn tíðarandi meðal femínista að ásaka karlmenn um kynferðislega misbeitingu þá hlýtur þessi spurning sem Ingibjörgu kvennréttindakonu þótti vega þyngst að gera það einmitt nú . Oft er mikið á sig laggt til að ná athygli og er það þykir mér nokkuð grunsamlegt þegar óreyndar leikkonur eru að væna leikstjóra og leikara um kynferðislegt áreiti . Það er þá ekki þessar konur sem að þessu sinni eiga frumkvæðið ; eru að draga menn á tálar einsog áður var haft að orði um háttalag kvenna. Eru frásagnir þeirra uppspuni einn ? . Það er ágætlega sem Halldór Jónsson fullorðinn og reyndur Íslenskur maður kemst að orði í bloggi sínu að ´ Karlmönnum er í dag lýst sem gangandi klámruddum ´ .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2019 | 08:03
Karlmanna Tískuvika í NEW YORK : N.HOOLYWOOD
Tískuvikur Herranna halda reið sína um háborgir og eftir viðkomu í Berlín , Kaupmannahöfn , Madrid og Barcelona er tískuvikan nú hlaupin af stokkunum í NEW YORK . Fyrstur reið á vaðið Joseph Abboud með klassískann karlmannafatnað og á eftir fylgdi Tom Ford en sýning hans er blönduð og klikkir út með glæsilegum samkvæmiskjólum kvenna sem bornar voru miklar keðjur við um hálsmál . Sýning N.HOOLYWOOD er látlaus og athygliverð þar sem hönnuðinum tekst vel upp . Modelinn í þeirri sýningu eru nemendur í listaskólanum Parson and Pratt og má ég til með að hæla því hvað lýsing var góð við sýninguna en það er ekki sérlega skemmtilegt að rýna í hálfmyrkvaðar tískusýningar einsog eitthvað sé verið að fela . Hér fara myndir frá þeirri sýningu .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 1
- Sl. sólarhring: 80
- Sl. viku: 275
- Frá upphafi: 50189
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 136
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar