31.1.2019 | 07:55
Ókunnur maður stelur málverki í galleríi í Moskvu um miðjann dag
Á sunnudaginn var gekk ókunnur maður inn í TRETYAKOV galleríið í Moskvu að málverki sem sýnir fjallstopp á Krímskaga , lyfti því af veggnum og gekk með það út í daginn . Málverkið heitir ´ Ar Petri - Crimea ´ eftitr raunhyggjumálarann Arthip Kuindzi , er frá 1908 og metið á 185 þúsund dollara . Lögreglunni í Moskvu tókst seinna að finna málverkið óskaddað á byggingarsvæði og handtók í kjölfarið 31 árs gamlann mann sem sagðist ekki muna hvar hann hefði verið þennann umrædda dag . Gallerí þetta hefur til sýnis söguleg málverk frá aldamótum 1900 og ekki svo alls fyrir löngu gekk maður þar inn og risti í gegn þekkta mynd er sýndi Ívan grimma ; með eggjárni . Mikið, hefur verið gagnrýnt síðan að öryggisgæsla sé ekki nægileg í rússneskum söfnum og galleríum og hefur Olga Golodet sem sér um menningarmál af hálfu ráðuneyta tekið að sér að skoða málið .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2019 | 19:44
HELGI ÖGRI : GANGSTER STYLE
Hér má sjá lífskúnstnerinn HELGI ÖGRI með GANGSTER STYLE ; en hans helstu fyrirmyndir í æsku voru mafíósinn AL CAPONE og bankaræninginn CLYDE í glæpatvíeykinu Bonnie and Clyde sem hundelt voru af lögregluliði um gervöll Bandaríkin .I BROKE THE LOVE / LAW ~
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2019 | 10:51
3 ´ TREND ´ sem eru INNI í karlmannatískunni veturinn 2019
Áberandi voru íhlutir og skreyti á tískusýningum karlmannatískunnar fyrir Haustið og Veturinn 2019 . Hér má sjá nokkuð af því sem þar var að sjá svosem mikið hálsskraut ; vasar fyrir I-podinn bornir í hálsmálinu og áberandi eyrnaskraut .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2019 | 08:24
Karl-model sem kemur jafnt fram í kvenfatatískusýningum sem karla
John Galliano hönnuður MAISON MARGIELA hafði jafnræði á milli karlmanna og kvenna í sýningu þeirra á hátískunni sem er fátítt í Haute Couture . Athygli vekur að einn karlfyrirsæti í sýningum hans kemur einnig fram klæddur kvenmannskjóli í sýningu þekktra hönnuða með kvenfyrirsætum . Hér má sjá þennann forkunnarfagra pilt í mynd .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2019 | 07:39
Höggmyndaverk í yfirstærðum
TATA DONOVAN notar efni úr iðnaðarframleiðslu í verk sín sem hún sýnir nú MCA Denver . Þau verða seint álitinn af naumhyggju en eru svo mikil um sig að þau fylla með öllu sýningarrýmið . Áhugaverð verk sem minna á og vísa í ólíkar umhverfanir og myndanir í náttúrunni og gætu mörg hver átt við Ísland .
25.1.2019 | 10:58
Útsýni í Reykjavík
Útsýni er fagurt á fögrum degi í Reykjavík og eftirsótt er orðið að eiga svokallaðar útsýnisíbúðir sem eru á efstu hæðum hárra fjölbýlis bygginga . Í suðri umlykur Bláfjallahringurinn byggðina og í fjarska má greina Keilir og Straumsvíkina . Í noðri ber hæst Úlfarsfell og Esja sem blasir við og gerir Reykjavíkurborg að fögru bæjarstæði ; traust og stöðug einsog breitt bak og veitir borgarstæðinu gott skjól . Í heiðríkju má greina tignarlegann Snæfellsjökullinn í fjarskanum sem hefur allann þann kraft sem ein af sjö orkustöðvum jarðarkringlunnar getur borið . Og svo má víða sjá útá ægifagurt hafið þar sem líf undirdjúpanna liggur í hími aldanna . Ekki fá allir notið útsýniseiginda en allir búa við glugga og flestir svalir því birtan er ekki síður af dáyndi . Gott birtuflæði í húsnæði lyftir anda mannsins og veitir hugarfró og kyrrð sálarinnar og getur verið jafnmikil fegurð og stórkostlegt útsýni . Og á svölunum má anda að sér hreinu loftin sem er ein mesta auðlind Íslands . Máltæki segir að þú haldir lífi svo lengi sem þú dregur lífsandann .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2019 | 03:23
Glæsisýningar Hátískunnar/Haute Couture í PARÍS
Þegar tískuvikum herratískunnar lýkur yfir taka við glæsisýningar hátísku kvenna [ Haute Couture ] í París . Þangað er boðið fyrirfólki og hefðardömum og er hver kjóllinn model-saumur sem falur er til kaups fyrir drjúgann skilding enda oft ótrúleg vinna að baki við handsaum . Nokkuð mátti sjá um stalla í kjólum að þessu sinni sem hafa þá eiginleika að liðast um við lendahreyfingar þeirrar sem herlegheitin ber . Á meðfylgjandi myndum má sjá slík dæmi frá GIAMBATTISTA VALLI ( Giamba ) og ARMANI PRIVÉ .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2019 | 04:57
Fyrirsætinn JORDAN BARRETT kynnir nýjustu línu ROBERTO CAVALLI
Yngsti sonur Roberto Cavalli ; ROBERT CAVALLI kýs að kynna nýjustu línu þeirra i myndkynningu þar sem fyrirsætinn JORDAN BARRETT er í hlutverki ungrar Rokk stjörnu . Á hann að sýna framhleypinn persónuleika en um leið tilfinninganæmann . Kallst línan : ´ ROYAL REBELLION ´ . Í vefnaði klæðanna má finna myndskreytingar frá listamanninum Gustavé Dore við ´ Divine Comedy ´ Dante Alighieri .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2019 | 07:39
Litagleði hjá KENZO á tískuviku karlmannatískunnar
Það ríkti mikil gleði og fögnuður í litapallíettu KENZO á tískuviku karlmannatískunnar fyrir haust vetur 2019-20 í París einsog sjá má á þessum myndum . Bjartur vetur framundan að ári .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2019 | 17:56
ÚLFAR Í SAUÐSGÆRU
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 165
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 92
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar