31.12.2019 | 03:42
Forleikur LOUIS VUITTON á karlmannatískuna fyrir Vorið 2020
Hér má sjá fyrirsætanna Jordan Barrett og Tim Schumscher í forsmekknum af fatnaði sem hönnuðurinn Virgil Abloh býður í herratísku LOUIS VUITTON með vormánuðum 2020 .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2019 | 12:32
Hvað sagði heimamaðurinn meira um ástandið í UKRAINA
Ég fékk heimsókn um jólin af gömlum pennavini frá KYIV í Ukraina sem ég hef skýrt frá og hvað hann hafði að segja frá um stríðsástandi í heimalandi sínu . Sagði hann að það ástand sem hefði skapast í milli heimamanna og Rússa myndi seint ljúka ; en meira sem hann sagði var það að Rússar hefðu búið lengi í landinu og því væru margar fjölskyldur orðnar blandaðar og rússneskumælandi og því ekki svo auðleysanleg deila milli þessarra þjóða þar eð íbúar Ukraina væru ekii lengur einsleit þjóð . Svo mörg voru þau orð .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2019 | 12:49
ÁRAMÓTAKVEÐJA ÖGRI Bloggari
ÖGRI Bloggari þakkar samskiftin á því liðna og óskar ~ GOTT NÝTT ÁR ~
Það kemur upp í hugann sígilt íslenskt Áramótalag sem vert er að kunna og hafa í huga á þessum tímamótum :
NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ Í ALDANNA SKAUT
OG ALDREI ÞAÐ KEMUR TIL BAKA
NÚ GENGINN ER SÉRHVER ÞESS GLEÐI OG ÞRAUT
UM EILÍFÐ ER RUNNIÐ Á ÆVINNAR BRAUT
EN MINNING ÞESS VÍST MUN ÞÓ VAKA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2019 | 03:08
Heimsókn frá KYIV í Ukraina
Frá árinu 1995 og til fleiri ára átti ég ungann pennavin í Kyiv í Ukrainu að nafni Alex Skahcko . Hann er nú 43 ára gamall og býr og starfar sem þýskukennari fyrir hælisleitendur í Munchen í Þýskalandi en svo skemmtilega vill til að hann er kominn upp í heimsókn til landsins og er nú hér staddur . Lýsti hann þvi fyrir mér í innliti til mín hvernig heimaborg hans hafi verið í herkví þegar rússneskur her settist við landamæri landsins og gerði sig til alls líklegann . Sagði hann að heimamenn ættu ekki von á að þessarri kergju milli þjóðanna lyki næstu tuttugu árin . Sagði hann Ukraína hafa verið stolta af því að lifa sjálfstæðir með friði og því hafi þetta ástand sem hefur skapast verið mikil vonbrigði . Biðjum fyrir Friði .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2019 | 08:48
Herraklæðnaður í Jólahátíðina sem gengur í garð
Hér má sjá karlfyrirsæta frá umboðsskrifstofu ELITE í Mílanó í klæðnaði frá JIL SANDER . Er hann með linda bundinn um sig miðjann svo jakkinn virðist aðsniðinn ; og við þennann herraklæðnað er hann í sneakers skófatnaði . Ljósmyndari er Antonino Cafiero .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2019 | 01:35
HÁTÍÐARKVEÐJA ÖGRI BLOGGARI
ÖGRI BLOGGARI FÆRIR GESTUM SÍNUM Á BLOG.IS ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL
[ Gestir bloggsins telja nú 7.500 en bloggið sérhæfir sig fyrst og fremst í umfjöllun um Herratísku og Listir ]
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2019 | 20:53
Bjarni Sigurbjörnsson sýnir að Laugavegur 74
Opnað hefur nýtt og snoturt sýningarrými í gönguleið Laugavegarins að númer 74 . Ríður á vaðið myndlistarmaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson sem menntaðist til lista á vesturströnd Bandaríkjanna og hefur getið sér gott orð fyrir nútímavædda myndlist . Í upphafi málaði hann litaflæði á plexigler en nú er það líkt og fusion óraðins litafárs á striga á þessarri sýningu . Má segja að myndir hans eða málverk séu tákngervingar bandarískrar núlistar og eru litir málverka hans ekki skjallandi en í klassiskri litapalléttu dökkra lita í góðu samræmi . Með honum er yngri myndlistarmaður að nafni Hermundur er ber fram nokkra andstæðu sígildrar málaralistar Bjarna með tæknivæddum sjónrænum upplifunum . Skjótist endilega inná þá listamenn er þið leggið leið ykkar um Laugaveginn .
Menning og listir | Breytt 15.12.2019 kl. 05:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2019 | 09:51
Nýr herrailmur frá GUCCI : MÉMOIRE
Kominn er á markað nýr herrailmur frá Gucci sem ber nafnið MÉMOIRE d´une Odeur . Heiðurinn af blöndun ilmsins á maður sem þekkir vel til og heitir Alberto Morillas og hefur gerð ilmsins og undirbúningur tekið langann tíma . Ilmurinn þykir ferskur en er sagður hafa þá eiginleika að breytast og laga sig að hverjum þeim sem ber hann .Jóla og hátíðarilmur herranna í ár .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2019 | 02:44
Hátíðarklæðnaður karlmannsins í ár
Hér má sjá karlmannsklæðnað sem er nokkuð að ganga inn í hátíðarnar framundan í ár en það er ljósfjólublár velour jakki við slaufu og ljósar buxur . Myndin birtist í herratímaritinu GQ Italia .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2019 | 07:15
HERTOGINN AF HÓLMAVÍK
Ég kynntist góðum vini á dvölum mínum erlendis sem ég hefi átt vinskap við og er hann var kynntur fyrir mér var mér tjáð að hann væri af íslensku föðurkyni ; af skipverja er hafði siglt frá Íslandi til Kaupinhafn og getið þar son með danskri konu . Reyndist konan vera tiginn ; af hertogafjölskyldu er á herragarð sinn við Óðinsvé á Fjóni og er í dag auðugasta fjölskylda Danaríkis er gengur næst konungshirðinni. Hefur þessi ágæti maður verið starfandi um nokkurra ára skeið hér á landi . Við nánari kynni tókst mér að rekja uppruna hans til Strandamanna fyrir sjónhverfingar sem hann gat beitt og voru honum erfðir eiginleikar er minntu á galdra . Hefi ég nú komist helst að því að nábrók sem er að finna í Galdrasafninu á Hólmavík og er þar til sýnis muni vera af þessum íslenska forföður hans er gat barnið í Danmörku . Má því kalla hann Hertoginn af Hólmavík .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 26
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 113
- Frá upphafi: 52670
Annað
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 101
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar