8.12.2019 | 07:15
HERTOGINN AF HÓLMAVÍK
Ég kynntist góðum vini á dvölum mínum erlendis sem ég hefi átt vinskap við og er hann var kynntur fyrir mér var mér tjáð að hann væri af íslensku föðurkyni ; af skipverja er hafði siglt frá Íslandi til Kaupinhafn og getið þar son með danskri konu . Reyndist konan vera tiginn ; af hertogafjölskyldu er á herragarð sinn við Óðinsvé á Fjóni og er í dag auðugasta fjölskylda Danaríkis er gengur næst konungshirðinni. Hefur þessi ágæti maður verið starfandi um nokkurra ára skeið hér á landi . Við nánari kynni tókst mér að rekja uppruna hans til Strandamanna fyrir sjónhverfingar sem hann gat beitt og voru honum erfðir eiginleikar er minntu á galdra . Hefi ég nú komist helst að því að nábrók sem er að finna í Galdrasafninu á Hólmavík og er þar til sýnis muni vera af þessum íslenska forföður hans er gat barnið í Danmörku . Má því kalla hann Hertoginn af Hólmavík .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 8. desember 2019
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 18
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 163
- Frá upphafi: 49091
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar