18.8.2018 | 01:25
HERRATÍSKA VIÐ INNSETNINGU Á COPENHAGEN FASHION WEEK
Það var hljóðleg uppákoma á Copenhagen Fashionweek þegar TOBIAS BIRK NIELSIN sýndi collection sýna í karlmannatísku fyrir Vor og Sumar 2019 sem kallaðist ´ The Survivalist ´ en hann er nýrisinn frá tískuvikunni í París . Sýningin fór fram í rými CIFF í Kaupmannahöfn við ljósainnsetningu listakonunnar Jeanette Hillig .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2018 | 06:58
Listamenn skipuleggja sig á KÚBU gegn afskiftum yfirvalda
Eftir því sem afskifti yfirvalda á KÚBA af allri listastarfsemi færist í aukana og snertir orðið flest svið lista ; eru listamenn þar farnir að hópast í skipulegar hreyfingar til að snúast gegn þessarri auknu íhlutun .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2018 | 08:16
SAYONARA BOY : Vinsælasti tónlistarstjarnan í Rússlandi
Hann er í gervi vitfirringsins en hefur dimma seiðandi rödd hinn kornungi SAYONARA BOY sem er vinsælasta tólistarstjarna Rússlands í dag . Syngur hann gjarna í tvíeyki með söngvaranum FEDUK en kemur einn fram á tónleikum . Áberandi er á tónleikum í Rússneskum borgum að tónleikagestir taka kröftuglega undir í söngnum .
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2018 | 07:25
XU MEEN : Suður Koreanskur karlfyrirsæti slær í gegn
XU MEEN er Suður Koreanskur karlfyrirsæti sem hefur verið sá önnum kafnasti fyrirsæta undanfarið og náð að slá í gegn . Á seasoninni fyrir sumarið 2019 gekk hann flestar sýningar á tískuvikum karlmannatískunnar af öllum karlfyrirsætum auk Haute Couture sýningar Givenchy . Þá hefur hann verið valinn til að vera andlit í auglýsingaherferðum fyrir bæði Givenchy og Versace . Hann er áberandi grannleitur sem þykir hæfa vel fyrirsætum .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2018 | 01:48
Mannlegir Skúlptúrar : ROGER HIORNS
Að tilefni Hinsegin Daga í Reykjavík undir umsjá nýs starfskrafts , Ingi - hefur opnað í Listasafni Íslands sýning breska listamannsins JEZ DOLAN á svokallaðri LGBT+list . Verk hans á sýningunni er unnið að beiðni breska þingsins uppúr WOLFENDEN skýrslu frá 1957 sem var liður í að afnema að hegðun samkynhneigðra teldist glæpsamlegt athæfi . Er í verkinu túlkað tungumál sem kemur fram í skýrslunni er var slang sem samkynhneigðir karlmenn í Bretlandi notuðu sín í milli og til að gefa vísbemdingar um sig þegar þeir hittust en fáir aðrir skildu . Má af þessu sjá að Ísland er nokkuð á eftir um aðfarir að hinsegin fólki og réttmæti þeirra baráttu fyrir viðurkenningu . Áhugavert verk og vissulega sögulegt . Er þessi listamaður fyrsti gestur verkefnisins : NATUR - North Atlantic Tale ; sem er liður í samevprópsku projekti er kallast : Creative Europe og fjallar um úrvinnslu menningararfsins .
6.8.2018 | 13:05
Við Íslendingar áttum okkar KYNTÁKN : RÚNAR JÚLÍUSSON
Nú þegar Hinsegin Dagar eru að ganga í garð er verðugt að minnast fyrirmynda karlmennskunnar á Íslandi . Hetjur í Íslendingasögum einsog Gunnar á Hlíðarenda sem var sagður manna fegurstur standa alltaf fyrir sínu . En við Íslendingar höfum líka átt okkar kyntákn sem var enginn annar en RÚNAR JÚLÍUSSON í Hljómum frá Keflavík og seinna hljómsveitinn Trúbrot . Var hann frægur fyrir uppákomur sínar undir tónleikahaldi á skemmtstaðnum GLAUMBÆR við Fríkirkjuveg þar sem hann heillaði með því að berast að ofan við söng og spil og naut hann lengi hylli fyrir vikið , væntanlega kvenna en hefur kanski orðið fyrirmynd einhverra af karlpeningnum líka þó ekki væri talað hátt um slíkt í þá daga . Þótti hann fullur kynþokka .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2018 | 06:55
Dularfullt brotthvarf innsetningar á Liverpool Biennal
Á Liverpool tvíæringi sem stendur yfir frá júlí fram í október hafði tyrkneska listakonan búandi og starfandi í Hollandi BANU CENNETOGLU komið fyrir innsetningu á vegvegg við Great George Street . Þar voru nöfn 34 þúsund flóttamanna sem hafa látið lífið við Evrópsk landamæri síðan 1993 .,nokkuð sláandi listi . Svo vildi til að morguninn 2. ágúst uppgötvaðist að einhverjir óprúttnir aðilar höfðu fjarlægt listaverkið í heild sinni án þess að hafa til þess nokkur leyfi . Væntanlega þessi listi verið í óþökk einhverra þeirra sem vilja ekki að slíkt spyrjist . Lýsa nú aðstandendur listahátíðarinnar eftir lýsingu á þeim sem þar hafa verið að verki .
5.8.2018 | 01:41
Síðir frakkar á karlmennina með Haustinu
Nú má búast við að fari eftir sem tískuhönnuðir hafa kynnt til sögunnar að karlmannafrakkar verða alveg kálfa - síðir með hausti og vetri .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 4
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 50352
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 109
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar