6.8.2018 | 13:05
Við Íslendingar áttum okkar KYNTÁKN : RÚNAR JÚLÍUSSON
Nú þegar Hinsegin Dagar eru að ganga í garð er verðugt að minnast fyrirmynda karlmennskunnar á Íslandi . Hetjur í Íslendingasögum einsog Gunnar á Hlíðarenda sem var sagður manna fegurstur standa alltaf fyrir sínu . En við Íslendingar höfum líka átt okkar kyntákn sem var enginn annar en RÚNAR JÚLÍUSSON í Hljómum frá Keflavík og seinna hljómsveitinn Trúbrot . Var hann frægur fyrir uppákomur sínar undir tónleikahaldi á skemmtstaðnum GLAUMBÆR við Fríkirkjuveg þar sem hann heillaði með því að berast að ofan við söng og spil og naut hann lengi hylli fyrir vikið , væntanlega kvenna en hefur kanski orðið fyrirmynd einhverra af karlpeningnum líka þó ekki væri talað hátt um slíkt í þá daga . Þótti hann fullur kynþokka .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2018 | 06:55
Dularfullt brotthvarf innsetningar á Liverpool Biennal
Á Liverpool tvíæringi sem stendur yfir frá júlí fram í október hafði tyrkneska listakonan búandi og starfandi í Hollandi BANU CENNETOGLU komið fyrir innsetningu á vegvegg við Great George Street . Þar voru nöfn 34 þúsund flóttamanna sem hafa látið lífið við Evrópsk landamæri síðan 1993 .,nokkuð sláandi listi . Svo vildi til að morguninn 2. ágúst uppgötvaðist að einhverjir óprúttnir aðilar höfðu fjarlægt listaverkið í heild sinni án þess að hafa til þess nokkur leyfi . Væntanlega þessi listi verið í óþökk einhverra þeirra sem vilja ekki að slíkt spyrjist . Lýsa nú aðstandendur listahátíðarinnar eftir lýsingu á þeim sem þar hafa verið að verki .
Bloggfærslur 6. ágúst 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 35
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 206
- Frá upphafi: 49559
Annað
- Innlit í dag: 28
- Innlit sl. viku: 159
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar