19.8.2018 | 13:33
Lifandi sýning KEES VISSER í BERG contemporary gallerí
KEES VISSER er myndlistarmaður sem kemur upphaflega hingað frá Hollandi . Þar hafði hann tekið upp vintygi við íslenska konu í myndlistarnámi og getið með henni buru sem er ástæðan fyrir því að hann hefur jafnframt á listferli sínum verið virkur og starfandi á Íslandi og skipað sér í röð fremstu myndlistarmanna . Ég minnist þess að hafa heimsótt þessi hjú , konan hét Rúna ; á ferð minni um Amsterdam fyrir orðið mörgum árum en aðspurður segir Kees mér að uppruni hanns liggi í Alsír . Listamaðurinn sver sig nokkuð í anda við naumhyggjuna með næsta eintóna litaflötum en skilur sig rétt aðeins frá þeim fyrir að fletir hans eru organiskir , hann leggur sig ekki fram að litaflöturinn sé beinn og reglulegur heldur óreglulega dreginn . Þá er áberandi að litirnir eru fullir af lífi sem mæta þér í björtum tóni og áferðin gjarna líkt og sendinn eða kristölluð . Kees spilar sterklega fram bláum litatóni og verður að teljast einstaklega ágæt myndröð hans af mismunandi blæbrigðum blás . Þetta held ég teljist listsýning í hærri staðli þess sem borið er fram í menningarlífi Reykjavíkurbæjar .
19.8.2018 | 12:27
HAN karlmannalína á tískuviku í Kaupmannahöfn tíunda árið
Sýningin fór fram í yfirgefnu vöruhúsi í Norðurhluta Kaupmannahafnar þar sem merkið HAN sýndi karlmannalínu sína fyrir Vor Sumar 2019 . Merkið hefur tekið þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn síðan 2013 og fagnar því 10unda ári sínu . Fatnaðurinn var sportlegur , mikil áhersla á denim klæðnað og herralegann sumarfatnað .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 19. ágúst 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 19
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 164
- Frá upphafi: 49092
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 103
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar