14.10.2019 | 11:04
Danskur félagi minn og HAFIÐ
Félagi minn Vollmar hefur kvatt Ísland og haldið aftur til sinna heimkynna í Kaupmannahöfn ; en hann var hér uppi og starfandi um nokkurra ára skeið og var með okkur góður og kær vinskapur . Aðkoma hans á Íslandi tengdist því að í föðurlegg er hann í forfeðrum af íslensku kyni en móðurleggurinn rekur tignar aðalsættir í hertogafjölskyldu við Óðinsvé á Fjóni þar sem hann er fæddur . Bernskustöðvar hans voru á Islands Brygge í Kaupmannahöfn þar sem hann átti æsku sína en þar hafði íslenskur skipverji komið til og átti tygi við danska konu sem tengdist í uppruna piltsins . Margur íslendingurinn sér ekki það sem næst honum stendur en máltækið segir að : ´ Glöggt er Gests Auga ´og það tjáði hann mér er við skiljumst að að það sem heillað hann mest að sjá og upplifa við Ísland var HAFIÐ .
Bloggar | Breytt 11.11.2019 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2019 | 02:39
Fyrirsætinn LUCKY BLUE SMITH situr fyrir ásamt systur sinni í Vintage stíl
Fyrirsætinn LUCKY BLUE SMITH situr fyrir ásamt systur sinni Pyber America í nýjasta hefti L´OFFICIEL BRASIL í vintage stílfærðum uppklæðningum þar sem hárgreiðsla frá sjötta áratugnum fær að njóta sín . Er klæðnaðurinn frá hönnunarmerkjum á við TODD SNYDER og skóframleiðandanum BALLY .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2019 | 03:35
Leikarinn TIMOTHÉE CHALAMET hlutskarpastur á rauða dreglinum
Hinn ungi franski leikari TIMOTHÉE CHALAMET hefur verið að vekja athygli undanfarið og nú leikur hann aðalhlutverkið í kvikmyndinni The KING . Þar er hinum unga Hal fylgt eftir þar til hann verður King Henry IV konungur Englands . Timothée þassi þykir koma vel fyrir og vekur ætið eftirtekt á rauða dreglinum fyrir það hvað hann er vel klæddur . Hér sjáum við hann á kvikmyndahátiðinni í Feneyjum þetta árið klæddann upp í jakkaföt frá Haider Ackermann og svo á opnunarhátíð við frumsýningu kvikmyndarinnar The King .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2019 | 04:41
Herratíska PRADA fyrir haust og vetur 2019-20
Hér má sjá myndir úr tímaritinu Dased and Confused Korea með sýnishorni af því sem tískuhúsið PRADA býður fyrir herra til haustsins og vetrarins 2019 - 20 . Ég minnist þess er ég heimsótti stöðvar Prada í Toscana á Ítalíu og hafði fundið þar nýja ólífugræna skyrtu úr örlítið teygjanlegu efni og spyr stúlku sem þar var við afgreiðslu hvort ég megi máta . Verður henni litið á mig og svarar : ´ I´ts slim fit ´. ´ Yes ´ svaraði ég og dróg andann djúpt inn í mátunarklefanum og fékk skyrtuna til að passa ; og átti vel og lengi . Í þessarri ferð varð ég upplýstur um það að Prada einsog flest ítölsk tískuhús væri í raunninni fyrst og fremst aldagamalt vefnaðarfyrirtæki og sannast að segja held ég að vefnaðurinn gerist hvergi vandaðri .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2019 | 01:05
Hausttíska 2019 frá MANGO Man
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2019 | 05:40
Teikningum LEONARDO DA VINCI ekki óhætt á sýningu í LOUVRE
LOUVRE safnið í París skipuleggur nú hátíðarsýningu á verkum ítalska meistarans Leonardo da Vinci að tilefni þess að 500 ár eru frá dauðadægri hans . Til stóð að hinar þekktu teikningar hans VITRUVIAN MAN yrðu á sýningunni en vegna mótmæla non-profit hópsins Italia Nostra var hætt við það . Töldu þeir myndirnar það verðmætar að þær gætu skaðast við flutninga og myndu ekki þola hálýsingu safnsins .
Menning og listir | Breytt 16.10.2019 kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2019 | 04:44
66oN býður ullarpeysuna : Ogri
Íslenski framleiðandinn 66 gráður Norður sem sérhæfir sig í útivistarfatnaði býður nú peysu sem má heita að þeir kalli eftir hinum þekkta íslenska fyrirsæta : Ogri . Er peysan hin vandaðasta úr bestu Merino ull og kostar litla 200 dollara . Hægt er að panta peysuna á netinu .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2019 | 04:13
Fyrirsætinn KIT BUTLER í Haustfatnaði karla
Hér má sjá hinn heimsþekkta fyrirsæta KIT BUTLER í haustklæðnaði sem boði er í stórverslunum HARRODS . Telur þar merki einsog BRIONI og GUCCI .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Top fyrirsætinn THIBAUD CHARON stendur fyrir í afslöppuðum karlmannafatnaði fyrir haust og vetur 2019.20 í nýrri útgáfu af tímaritinu Forbes Espana . Klæðist hann fatnaði frá meðal annars LACOSTE og GIORGIO ARMANI .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2019 | 04:25
Portrait af fyrirsæta
Bloggar | Breytt 9.11.2019 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 27
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 194
- Frá upphafi: 49774
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 103
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar