12.10.2019 | 04:41
Herratíska PRADA fyrir haust og vetur 2019-20
Hér má sjá myndir úr tímaritinu Dased and Confused Korea með sýnishorni af því sem tískuhúsið PRADA býður fyrir herra til haustsins og vetrarins 2019 - 20 . Ég minnist þess er ég heimsótti stöðvar Prada í Toscana á Ítalíu og hafði fundið þar nýja ólífugræna skyrtu úr örlítið teygjanlegu efni og spyr stúlku sem þar var við afgreiðslu hvort ég megi máta . Verður henni litið á mig og svarar : ´ I´ts slim fit ´. ´ Yes ´ svaraði ég og dróg andann djúpt inn í mátunarklefanum og fékk skyrtuna til að passa ; og átti vel og lengi . Í þessarri ferð varð ég upplýstur um það að Prada einsog flest ítölsk tískuhús væri í raunninni fyrst og fremst aldagamalt vefnaðarfyrirtæki og sannast að segja held ég að vefnaðurinn gerist hvergi vandaðri .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 12. október 2019
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 8
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 153
- Frá upphafi: 49081
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 92
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar