10.5.2018 | 03:21
JAKKASKOKKAR Á HERRAMENN
RAF SIMONS kynnti fyrst árið 2005 nokkurskonar opna jakkaskokka á herramennm og útfærði þá enn frekar árið 2011 . Þetta er nokkur nýlunda í herraklæðnaði en ekki ósvipað hefur sést hjá PRADA .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svo einkennilega vill til að sveitastjórnarkosningar hér á landi eru áætlaðar 26 .maj en það er einmitt afmælisdagur Friðriks krónprins Dana og á hann stórafmæli að þessu sinni ; verður fimmtugur . Mér virðast Danir stundum enn í dag ylja sér við það að þeir hafi verið hér nýlenduveldi en einhver er hugvilla þeirra um það því óneitanlega hlýtur eitthvað að hafa breyst í Íslensku umhverfi við hernámið 1944 er Bretar stigu hér land , og það mótað samfélagið síðan .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2018 | 11:51
Nokkrir bestu herraklæðnaðir frá MET Costume Institute Gala 2018
Hér má sjá myndir frá því er MET Costume Institute Gala 2018 var haldið af nokkrum þeirra er þóttu þeir best klæddu til herrafatnaðar við viðburðinn . Myndirnar eru eftirfarandi : Andrew Garfield í TOM FORD ,Tom Brady og Gisele Búndchen í VERSACE ,Wiz Kahlifa í DIOR og að lokum Jared Leto í GUCCI .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2018 | 08:55
Ólafur Elíasson og Ragnar Kjartansson takast á í höggmyndasamkeppni
Oslo borg hefur stofnað til höggmyndasamkeppni um útilistaverk við nýtt MUNCH safn sem verið er að reisa á nýju hafnarsvæði borgarinnar . 30 metra löng brú mun tengja hafnarsvæðið við safnið og er áætlað það það verði tilbúið árið 2020 . 7 alþjóðlegir listamenn hafa verið valdir til samkeppninnar og eru þeir Ragnar Kjartannson og Ólafur Elíasson í hópnum . Ólafur Elíasson er ekki óvanur samkeppnum af þessu tagi og hefur hvað eftir annað borið sigur úr bítum , en Ragnar á ekki langt að sækja höggmyndaarfleifðina því afi hans var nafni hans Ragnar Kjartansson myndhöggvari . Verður spennandi að sjá þá takast á í þessu verkefni .
6.5.2018 | 04:00
Ukrainski karlfyrirsætinn YURI PLESKUN með Come Back
Ukrainski modelið Yuri Pleskun sem reyndar hefur alist upp í Bandaríkjunum var einn sá þekktasti í heimi fyrirsæta fyrir um það bil fjórum til sex árum ef ekki lengra er síðan . Var hann einn hinna allra vinsælustu . Nú á hann gott come back á sviði tískuljósmynda og birtist á ný í campaigns í þekktum herratímaritum og sjónvarpsrásum .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2018 | 14:05
Skemmtilega stílfærð áritun
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2018 | 09:49
Umdeilt ljósmyndaverk listakonunnar HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR
Nokkuð er umdeilt ljósmyndaverk listakonunnar HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR frá sýningu hennar BLETTUR í Hafnarhúsi 2011 . Er hún sjálf listakonan fyrirmynd í verkinu og að sjá að hún hafi sviðið sig undir handarkrikanum sem heiti sýningarinnar vísaði í . Er spurt hvort hún hafi þarna gengið yfir mörk Velsæmis einsog það er kallað . En myndverkið er óneitanlega nokkuð hroðaleg ásýnd og gæti verið ætlað að ögra .
4.5.2018 | 07:58
Skondin uppákoma í I8 gallerí
I8 gallerí í Tryggvagötu opnaði með pomp og pragt sýningu á verkum meistara Íslenskrar listasögu þeim Þorvaldi Skúlasyni , Guðmundu Anrésdóttir og Nínu Tryggvadóttir . Heldur varð skondin uppákoma við opnunina er fullorðin kona kemur í fylgd dóttur sinnar en við að líta myndirnar hrópar kerlingin hálfum huga : ' Þetta eru falskar myndir , sjáiði hvað litir í mynd Nínu eru skærir einsog sé nýmálað ; Þorvaldur málaði aldrei í þessum pastellitum . ´ Ja viti nú hver , það verða sérfróðir menn að dæma um hvort er rétt hvað konan er að fara . Hún var vel við aldur og þekkti eitthvað til . Allavega þykist ég geta vitnað um að myndir Guðmundu Andrésdottir voru upprunalegar frá listamanni því þær hef ég allar séð áður . Myndirnar eru verðsettar frá 4 til 12 milljónum króna svo maður skyldi ætla að eitthvað sé í húfi . Meðal gesta við þessa opnun sem annars fór hið besta fram var Eyþór Arnalds borgarstjóraframbjóðandi .
3.5.2018 | 09:48
LÍFIÐ Í UNDIRDJÚPUM HAFSINS
2.5.2018 | 16:31
ABRAHAM LINCOLN - Minnisvarði
ABRAHAM LINCOLN var 16di forseti Bandaríkjanna frá 1861 og sem leiddi bandaríkjamenn í gegnum Innanlandsdeilur [ Civil War ] og var sá sem afnam þrælahald . Hann var myrtur eftir fjögurra ára setu í valdastóli þann 15 Apríl 1865 þar sem hann var skotinn í bakið þar sem hann sat í leikhússtúku . Myndin sýnir minnisvarða um Abraham Lincoln einn mest metna leiðtoga í sögu Norður Ameríku í Washington D.C. .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 0
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 148
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 112
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar