21.5.2018 | 13:05
Á ÓGNARHRAÐA . . . .
20.5.2018 | 01:54
Best klæddu karlmennirnir á rauða dreglinum á CANNES
Verðlaunahátíð kvikmyndanna 2018 í CANNES hefur nú staðið sem hæst og hér getur að líta nokkra þeirra karlmanna er þóttu best klæddir á rauða dreglinum . Fyrstur kemur Guillaume Canet í Giorgio Armani , því næst fyrirsætinn Francisco Lachowski í Tommy Hilfiger , þá má sjá þau Jennifer Connelly og Paul Bettany í Saint Laurent og að lokum leikarana Mads Mikkelsen og Joe Penna prýða sínu fínasta pússi . Karlmenn þykja orðið svo glæsilegir til fara að það liggur við að þeir séu farnir að skyggja á dívurnar . Þær mega fara að vara sig .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2018 | 16:55
PRINS HENRY JÁTVARÐUR klæddist einkennisbúningi við Brúðkaup sitt
Íslandsvinurinn Harry prins sem kom hér upp með breska landhernum og laggði á jökul klæddist einkennisbúningi yfirmanns Breska sjóhersins við brúðkaup þeirra hjóna hans og Meghan Markle . Prins Charles leiddi brúðina kirkjuganginn að altarinu en áberandi var hversu langt brúðarslörið dróg og voru það ungir tvíburar sem báru það uppi . Brúðkaupið fór fram með mestu pomp og pragt og var það blökkumannapredíkari sem flutti predíkun en móðir brúðarinnar er af blökkumannakyni . Eru þau brúðhjónin nú hamingjusamlega gift en brúðarterturnar voru organiskar ( lífrænar ) og sérstaklega lagaðar af bakarahirðmeisturum .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2018 | 00:57
Sérstæð byggingarlist : THE SOCIAL FABRIC
18.5.2018 | 10:12
ARMANI tekur ekki þátt í tískuviku karlmannatísku í Júní
Giorgio ARMANI hefur tilkynnt að þeirra merki taka ekki þátt í tískuviku karlmannatísku fyrir Vor 2019 sem fram fer í Mílanó í Júní núkomandi heldur muni hafa sameiginlegar sýningar fyrir kvenfatatísku og herrafatnað þegar sýningar kventísku fara af stað í september .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2018 | 04:32
Verður PRINS HARRY einkennisklæddur á brúðkaupsdaginn ?
David´s Bridal hefur verið fengið til að hanna brúðarkjól Meghan Markle fyrir hið konunglega brúðkaup sem stendur fyrir dyrum . Spurt er að hverju Prinsinn muni klæðast og leiddar líkur að því að hann verði í einkennisbúningnum sem hann bar er hann tók við sem yfirmaður í breska sjóhernum , CAPTAIN GENERAL, af afa sínum hertoganum af Edinborg George . Væri það til að sýna yfirvöldum við stjórnvöl í Bretlandi tilhlýðilega virðingu . Eins gæti verið að hann fengi leyfi til að vera uppbúinn án viðhafnar . Þá er spurt hvort hann muni skegg eður ei við brúðkaupið .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2018 | 04:37
Sýning MIU MIU haust vetur 2018 - 19 vekur athygli
Nú hafa verið í gangi svokallaðar RETAIL tískusýningar þar sem hátískuhúsin sýna hvað þau bjóða til fals á næsta tímabili . MIU MIU er svona meira CHICK lína Miuccia Prada sem er þekkt fyrir einstaklega vandaðan vefnað og sýnir hún þessa línu sína í París .Vakti sýningin fyrir haust vetur 2018 - 19 þó nokkra athygli fyrir skapandi gleði sína . Einkennandi voru miklar yfirhafnir sem fóru við stutt pils og svo miklar tweed kápur . Á miðju myndinni má sjá hina belgísku fyrirsætu Hanna Gabe Odiele sem hefur verið starfandi fjölda ára enda ekki svo aldin að árum í túrkis litri kápu .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2018 | 10:40
MAY BE
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2018 | 04:39
ÞRÍBROTAR [ TRILOBITA ]
11.5.2018 | 05:00
HEIMIR BJÖRG'ULFSSON opnar sýningu í Tveir Hrafnar
Í dag föstudag 11. maj kl. 17.00 opnar HEIMIR BJÖRGÚLFSSON tónlistar - og myndlistarmaður sýningu í Tveir Hrafnar Baldursgötu . Skipaði hann um tíma elektrónískan tónlistardúett með Helgi Þórsson og komu þeir fram í Hollandi . Heimir vinnur lifandi collage myndir af samsetningum ljósmyndar ímynda svo af verður harmonía náttúrufyrirbæra . Þessu upplagi samsetninga mynda veitti ég fyrst eftirtekt við útskriftarsýningu Listaháskóli Íslands hjá hinni Rússnesku Olga sem var samtíma Heimir í námi en hefur seinna menntað sig sem innanhúsarkitekt . Taldi ég þessa myndgerð því af Rússneskum toga sprottin , en myndgerðina hefur listamaðurinn tileinkað sér í viðameiri formati og kemur vel til skila á skemmtilegann hátt . Myndlistarmaður sem vert er að mæla með .
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 1
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 212
- Frá upphafi: 50072
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 127
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar