30.4.2018 | 05:03
Vinsælasti karlfyrirsætinn í dag : TON HEUKELS
TON HEUKELS er Hollenskur að uppruna , fæddur árið 1993 og því 25 ára að aldri . Hann hóf feril sinn sem fyrirsæti sumarið 2011 og hefur gengið tískupallana síðan meira en nokkur síðustu misseri og er í dag einn sá allra vinsælasti ljósmyndafyrirsætinn . Ég má til með að stæra mig af því að þegar hann var að hefja feril sinn gerði ég færslu við mynd til kynningar á honum að mér sýndist hann efni í ná langt í karlfyrirsæta heiminum og hefur það sannarlega gengið eftir .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2018 | 06:29
CAMERON DALLAS stjarnan í forsíðu og síðum HARPER´S BAZAAR MEN TH
Hinn bandaríski nýfyrirsæti er nú þegar orðinn stjarna og prýðir að þessu sinni forsíðu og síður sumarblaðs 2018 herratímaritsins HARPER´S BAZAAR MEN sem gefið er út í Thailandi .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2018 | 05:29
Sonur ritara í Frímúrarareglunni
Ég bloggarinn OGRI er Helgi Ásmundsson og var faðir minn Ásmundur Jónatan Ásmundsson af Vallá ætt á Kjalarnesi . Hann var ritari í Frímúrareglunni MÍMIR . Nefndi hann mig Ögri svo af varð Helgi Ögri ; sem starfandi myndlistarmaður og model Ogri [ Helgi Ogri ] .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2018 | 04:02
Ungur karlfyrirsæti frændi supermodelsins HELENA CHRISTENSEN
OLIVER SONNE er ungur fyrirsæti sem er að verða nokkuð þekktur í fyrirsætaheiminum . Prýddi hann forsíðu VOUGE Hommes fyrir veturinn 2017 og nú síðast forsíðu L´OFFICIEL HOMMES fyrir vor og sumar 2018 auk þess að hafa komið fram í fjölda sýninga . Oliver þessi á ekki langt að sækja fyrirsætueiginleikana því hann er frændi hinnar hálf Chileönsku HELENA CHRISTENSEN einnar af svokölluðum supermodelum áttunda áratugarins . Helena sem er í dag ljósmyndari hefur verið dugleg við að ljósmynda hinn unga frænda sinn .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2018 | 07:16
BLINK ´- Ég kveiki á perunni
26.4.2018 | 01:49
Brúðkaup Prince Harry og Meghan Markle í undirbúningi ; Sérstakur unisex Ilmur fyrir brúðhjónin
Prins Harry og ástkona hans leikkonan Meghan Markle verða gefin saman þann 19.Mai í Kapellu Heilags Georgs í Windsor Kastala . Þau hjónaleysin eru á ströngu mataræði við undirbúning brúðkaupsins og er prinsinn hættur að reykja og hefur þá þegar léttst um fimm kíló . Sérstakur ilmur verður útbúin fyrir þau til að bera við brúðkaupið og hefur Floris London sem verið hefur perfumer við bresku konungsfjölskylduna síðan 1790 verið beðinn um að útbúa sameiginlegan ilm fyrir þau bæði . Hafa þeir kynnt að ilmurinn verið byggður á ilmnum ´Bergamotto di Positano ´en síðastnefnda nafnið er þorp á Ítalíu sem á sér sögu um brúði við konunglegt brúðkaup í Englandi . Í ilmnum verður að finna Bergamot blómið ,engifer , grænt te og appelsínu blómið . Ilmurinn verður ekki fáanlegur fyrir almenning .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2018 | 10:18
INNRÁS í ÁSMUNDARSAFNI
Í Ásmundarsafni er gangandi verkefni sem kallast INNRÁS af hálfu Listasafns Reykjavíkur þar sem fjörum völdum yngri listamönnum á að heita boðið til . Að þessu sinni skyldi listamaðurinn vera Hrafnhildur Arnardóttir sem býr og starfar í New York og hefur getið sér töluverðan orðstír sem listakona . Það var þó varla að sjá að listakonunni væri gefið nokkurt ráðrúm , verk Ásmundar Sveinssonar í yfirlitssýningu sem hljóta að skoðast í ljósi síns tíma stóðu föst sem stafur yfir steini og ekki að sjá að listakonunni væri gefið nokkuð svigrúm til að sýna sköpunarmátt sinn .
22.4.2018 | 06:19
Fyrirsætan COCO ROCHA eignast barn
Fyrirsætan COCO ROCHA eignaðist lítinn son á dögunum . Er það hennar annað barn en fyrir á hún eina dóttur . Hefur hann hlotið nafnið Iver Eames Conran . Hann ætti að verða föngulegur er hann vex úr grasi eftir því sem móðirin er annáluð fyrir glæsileika .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2018 | 03:15
LIFANDI PERFORMANS Í ÞRJÁ KLUKKUTÍMA HJÁ UNGU LISTAFÓLKI
Í íbúð í yfirgefnu húsi að Klapparstíg 12 fór fram föstudaginn 20. Apríl lifandi multimedískur gjörningur í 3 klukkutíma þennan eina dag . Listamennirnir sem stóðu að þessari uppákomu voru bæði listnemar og starfandi listamenn sem höfðu komið saman í Listaháskóli Íslands og ályktað sem svo að gera tilraun til að komast út fyrir hið fastbundna form listastofnana sem væru orðnar of hefbundnar / Akademískar í forminu og fremja þess í stað lifandi listgjörning . Komu listamennirnir víðar að en frá Íslandi m.a. Litháen . Var samkoman fjölsótt og tókst með ágætum .
20.4.2018 | 06:49
HÆST ´HEYKIR ´ HEIMSKUR SÉR
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 29
- Sl. sólarhring: 55
- Sl. viku: 183
- Frá upphafi: 49707
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 104
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar