DRAUMUR ~ [ OGRI - Monumental ]

A DREAM YOU DREAM ALONE IS ONLY A DREAM . OGRI monumentalA DREAM YOU DREAM TOGETHER IS REALITY .


Uppnám um Útskriftarsýningu Meistaranema við ListaAkademiuna í Kaupmannahöfn

Föstudaginn 13. Apríl opnar Útskriftarsýning nemenda í Meistaranámi við Myndlistarskóla Konunglegu Dönsku Listaakademíunnar í Kaupmannahöfn , en uppnám hefur orðið um sýninguna eftir að útskriftarnemanda af múslimskum uppruna var neitað af Hallar- og Menningarráði um að setja upp veggverk  á úthlið sýningarstaðar Akademíunnar Charlottenborg við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn . Var fyrirhugað að verkið sneri að Nýhöfninni þar sem eru mörg veitingahús og gjarnan mikil hreyfing af fólki ARoS listasafnið í Árósum. Ég var nemandi við Höggmyndaskóla þessarrar AkademíuFrétt um útskriftarsýningu í Kaupmannahöfn uppúr 1980 og hef eilítið átt undir að sækja fyrir að vera af öðru en dönsku bergi brotinn þó ég almennt hafi notið dyggs stuðnings , en lent milli stafs og sleggju sömuleiðis hér á landi fyrir að vera fyrirmunað að koma af dönskum skóla . Þykir mikill heiður af því í heimalandinu að fá inngöngu í Listaakademíuna og eru fáir sem komast að . Þó for svo að lokum að forstöðumaður ARoS listasafnsins í Árósum bauð konunni að setja upp verkið á útvegg safns síns og var það niðurstaðan .


ÖLL ERUM VIÐ SAMEINUÐ Í ÞRÍVÍDDINNI

Öll erum við sameinuð í TRILOGIU . Það er gott til þess að vita að allt okkar MONOPOL vinnur saman sem ein sameinuð Heild .Fjölskylda


Sýning í Gallerí Port : Sænski graffiti listamaðurinn KURIR

Gallerí PORT er sýningarrými innaf húsasundi að Laugavegi 23b og dettur mér alltaf í hug gamli Listamannaskálinn hér fyrr á tímum þgar ég kem þar inn . Þar er að finna grasrótarstarfsemi ungra listamanna og sýnir þar nú sænskur upphaflega GRAFFITI listamaður sem kallar sig KURIR . Tilheyrir hann hópi í Stokkhólmi sem kallar sig PUBBS eða ´ The Poor Ugly Bad Boys ´og mætti af þessu ráða að kynvitund og samkennd karlmanna sé að eflast í Stokkhólmi og væri vel ef hið sama gerðist með Íslenskri Karlþjóð . Við fyrstu sýn minna myndir hans á dúkristur en listamaðurinn tjáði mér sjálfur að þær væru allar teiknaðar með bleki . Við yfirlestur virtust mér þær tvennskonar ,; annarsvegar fantasíuteikningar og hinsvegar aðrarGraffiti listamaðurinn KURIRKURIR í Gallerí PORT líkt og formrænni og voru þær myndir ákaflega skemmtilega skýrar og vel fram settar og lesanlegar í sjónspili sínu . Það er vel þess virði að koma við í Gallerí PORT á rölti um Laugaveginn og eru myndir Kurir verðsettar á 24 þúsund sem ætti nú ekki að setja neinn á hausinn . Graffiti sem á Íslensku kallaðist Veggjakrot er greinilega orðið vaxtarsproti Ungra skapandi listamanna .


MARC JACOBS trúlofast Unnusta sínum til tveggja ára

Tískuhönnuðurinn þekkti Marc Jacobs er sem kunnugt er samkynhneigður ( bi-pollar ) bað nýverið unnusta síns til tveggja ára . Valdi hann til þess uppáhalds mexikóska veitingahúsið sitt ´Chipotle ´ í New York West Village þar sem þeir halda til og játaði kærleiksbróðir hans Charly DiFransesco bónorðinu . Mikið hefur verið fjallað um þá í fjölmiðlum og þeir verið milli tannanna á slúðurdálkum Marc Jacobs og unnustiog því tímabært að staðfesta sambandið .


model Ogri og KENZO - mynd

mynd : model Helgi Ögri og KENZOmodel Ogri


Persónulegt bréf frá Winnie Mandela ; Blessuð sé Minning Hennar

Winnie Mandela fyrrverandi eiginkona Nelson Mandela er öll . Saman börðust þau gegn aðskilnaði hvítra og svartra APARTHEID í Suður Afríku . Til að sýna stuðning minn skrifaði ég henni einhverju sinni bréf og sendi til hennar . Fékk ég persónulega áritað svar frá henni til baka þar sem hún kallaði sig ´Mother of Africa ´. Til að sýna konunni tilhlýðilega virðingu afhenti ég bréfið Vigdísi Finnbogadóttur . Blessuð sé minning þessarrar baráttukonu .Winnie Mandela in memoriam


« Fyrri síða

Um bloggið

ÖGRI

Höfundur

ÖGRI
ÖGRI

bloggari

Apríl 2018
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Grandpacore-Cardigan-JCrew
  • Grandpacore-Flat-Cap-ASOS
  • Athleisure-Joggers-UNIQLO
  • 441274946 757766186531034 1794356117925350490 n
  • LOUIS-VUITTON-AMERICAS-CUP-LOOK-14

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 148
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 112
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband