15.4.2018 | 11:30
Útskriftarsýning Meistaranema í myndlist og listfræði
Sama dag og Afgang mastersnám við myndlistaskóla Lista Akademíunnar í Kaupmannahöfn opnaði í Charlottenborg opnaði í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi sýning meistaranema í myndlist og listfræði við Listaháskóli Íslands . Safnið stofnaði Birgitta Spur eftirlifandi eiginkona Sigurjóns til varðveislu verka hans en sjálf er hún myndhöggvari frá Billedhuggerskole / Höggmyndaskóli Akademíunnar og á hún eitt snoturt verk í höggmyndagarði kvenna í Hljómskálagarði . Sýninguna nefna aðstandendur VIÐ MIÐ sem er orðaleikur þar sem Við erum aðkomendur og sýnendur en Mið vísar í staðsetningu og sögu staðhátta . Holdsveikraspítali stóð í Laugarnesi þar til hann brann og eru tvö ljósmynda grafísk verk þar sem sviðinn er hluti myndanna tilvísun í spítalann á þessum stað . Annað vakti eftirtekt mína að við aðkomuna hafði verið útbúinn göngubrú en inni salnum hékk rautt tjald líkt og rauða dreglinum hafi verið fórnað . Kennari við meistaranám í myndlist er Bryndís H. Snæbjörnsdóttir og verður að segjast að henni hefur tekisi að byggja undir heildræna innsetningu 10 listamanna af ólíkum uppruna þar sem verkin vinna saman í einni heild og eru sögð eiga að vinna með verkum í safninu . Ekki síður vísuðu þau í hið einstæða útsýni að hafinu sem er úr þessu húsi á þessum stað .Til Hamingju Útskriftarnemendur .
15.4.2018 | 07:17
OGRI promotion - karlfyrirsætaefni
Árið 2010 var stofnuð starfseminn OGRI promotion [ OGRI pr - ( model Ogri ) ] sem kynningarstarfsemi um að uppgötva fyrirsæta / fyrirsætur og koma þeim hugsanlega áfram til starfsemi umboðsskrifstofa [ model management ] . Hefur starfsemin starfsleyfi sem fálagstarfsemi en er ekki heimilt að greiða fé til launa . Var það skilyrði stofnanda að starfsemin snerist um val og mat fyrirsætuefna sem sjálfráð um hverjir skyldu til valdir . Árið 2011 skipulagði OGRI pr tískusýningu herra að sumarlagi að Ingólfstorgi og seinna tvennar árstíðabundnar sýningar að kaffitorgi í turni Höfðatorgs . Var tilgangur sýninganna að hafa fram er mætti segja hinna hefðbundnu Íslensku hönnun þar sem notað er innlent hráefni . Starfsemin hefur frá upphafi fyrst og fremst einbeitt sér að karlfyrirsæta efnum .Í seinni tíð hefur starfsemin aðallega einbeitt sér að ljósmyndavinnu og haldið uppi myndabloggi á blogginu BLOGLOVIN .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 15. apríl 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 4
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 215
- Frá upphafi: 50075
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 130
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar