14.9.2019 | 08:37
Vetrarúlpa á karlmenn frá MASSIMO DUTTI
Þó við höfum enn tímann fyrir okkur þá kemur að því að þörf er á skjólgóðri og hlýrri yfirhöfn í kulda og vetrarveður ; ef svo skyldi fara að hér skylli á vetur . Við ættum kannski að leita álits veðurfræðinga hvort og hvenær svo verður . En hér má sjá fyrirsætann Roberto Sipos sem hefur fyrirvara á sér og klæðist vetrarúlpu með loðkraga frá MASSIMO DUTTI .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2019 | 08:24
Sýning TOM FORD á tískuviku í New YORK
Tískuvikum kvenfatatísku er hrundið af stað í New York ; en sýningarnar eru gjarnan blandaðar báðum kynjum og hér má sjá nokkur herra lookin frá sýningu TOM FORD fyrir vor og sumar 2020 . Sá sem er í rauðslegnum jakka er fyrirsætinn Eric Van Gils .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2019 | 06:13
Karlmenn klæða sig upp fyrir Veturinn
Dagana er farið að stytta og sumarhlýindin gengin yfir ; rétt aðeins farið að kólna í veðri . Það fer að verða tímabært að hugsa fyrir vetrinum : Rúllukragapeysa gæti komið sér vel og skjólgóður frakki ( Trench coat ) . Íslenska ullin svo sem góð ullarpeysa mun engann svíkja .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2019 | 06:44
LAMBORGHINI kynnir Hybrid sportbíl
Á bílasýningunni sem er framundan í Frankfurt mun Ítalski sportbílaframleiðandinn kynna til sögunnar hybrid bíl sem þó er sá kraftmesti sem þeir hafa framleidd hingað til . Kallast hann SIAN og er með 620 hestafla V12 vél sem studd er af tveimur rafmótorum sem innihalda lithium-ion batterí hleðslur .
7.9.2019 | 18:30
Falleg sýning ELÍN HANSDÓTTIR í Ásmundarsal
Ásmundarsalur hefur endurnýjast sem listrými í menningarflóru Reykjavíkur og er þar samtímis boðið uppá aðkomu af vistlegri kaffistofu . Myndlistarkonan ELÍN HANSDÓTTIR sem eftir því sem ég hef náð að fylgja henni er skúlptúr listamaður sem vinnur rýmisverk hefur nú opnað sýningu í sal og gryfju hússins . Sýninguna kallar hún Annarsstaðar og verður af því ákveðið Afstæði því á sýningunni eru myndir af modeli af sal staðarins og model af gryfju . En staðhættir verða að hennar túlkun líkt og aflokað rými sem mér kemur í hug Sálin mannsins sem hvílir einsog sálarfylgsni innilokuð og enginn veit hvar þar leynist eða er að finna . þÓ er einsog einhver tómleiki yfir salarkynnum í mynd hennar ; kanski að það sé tíminn - söknuður Verk hannar í gryfju minnti mig nokkuuð á verk Hörpu Björnsdóttir í Gallerí Sævars Karls á sínum tíma sem hún kallaði HÍTIN ; gólfflötur models af staðarháttum og rými Gryfjunnar rennur niður er að því virðist botnlausa hít . Góð rýmisverk og falleg sýning hjá listakonunni með látlausu yfirbragði .
5.9.2019 | 11:07
Herratíska BERLUTI haust vetur 2019.20
Hér má sjá myndir af Herratísku Ítalska merkisins BERLUTI sem sérhæfir sig í karlmannafatnaði fyrir haust og vetur 2019.20 . Rauður sýnir sig nokkuð vera í karlmannafatnaði með komandi árstíðum .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2019 | 05:38
DAVID BECKHAM fyrirsæti
Fyrrum knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur verið vinsæll sem fyrirsæti á undanförnum árum og er fyrir í auglýsingaherferðum auk þess að hafa prýtt forsíðu bandaríska lífstíls tímaritsins GQ sem fyrst og fremst er stílað fyrir karlmenn . Kona hans Viktoria er í dag þekkt sem tískuhönnuður og hefur náð hvað mestri athygli með Instagram skoðunum .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2019 | 10:50
RAF SIMONS gerir DAVID LYNCH heiður til í nýjustu áprentunum sínum
Frá RAF SIMONS eru komnir bolir með áprentunum þar sem DAVID LYNCH frá sjónvarpsþáttunum Twin Peak og kvikmyndinni Blue Velvet frá 1986 er gerður að Homage . Annann bolanna prýðir vegleg mynd af leikonunni Laura Dern úr Blue Velvet . Bolina má panta á netinu og kosta þeir 510 dollara . Á þeim er logo Raf Simons .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2019 | 05:31
Fyrirsætinn JONAS GLÖER í haust og vetrarlínu PAUL SMITH
Hér má sjá hinn þekkta þýska fyrirsæta JONAS GLÖER í klæðnaði frá PAUL SMITH fyrit haust vetur 2019.20 . Verslunin KÚLTÚR í Kringlunni býður herrafatnað frá þessum Lundúnahönnuði .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2019 | 04:39
Fyrirsætinn KIT BUTLER sýnir okkur GUCCI style
Í september hefti GQ Mexico sýnir breski fyrirsætinn KIT BUTLER það nýjasta 2019 í hönnunn Alessandro Michele í stífæringum GUCCI karlmannafatnaðar . Ljósmyndari er Ben Lamberty .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 18
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 229
- Frá upphafi: 50089
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar