MEÐ BEIN Í NEFINU : Sir Henning Pold

Ég hefi hér skýrt frá góðvini mínum í Kaupmannahöfn sem er þekktur tónlistarmaður þar í landi og rakið sögu hans af íslensku föðurkyni í forföður . Dvaldi hann hér á Íslandi á árunum 2010 til 2013 og hafði viðkomu á síðan komandi árum og var þá með okkur vinskapur kær . Mér hefur tekist að rekja föðurættir hans til galdramanna á Ströndum og Vestfjarða þar sem ég gat séð að hann hafði til að bera kynngi til augna og sjónar en ekki vildi betur til en svo að íslensk læknastétt tók til við að greina galdramátt hans sem sjónvillu og hafa komið á hann gleraugum . Ekki eru nú vitsmunirnir og viskan mikil . Móðurætt mín er að vestan frá Örlygshöfn við Patreksfjörð sem amma mín Sigrún Eiríksdóttir var systir Helgi Hermann Eiríksson sem var bankastjóri Iðnaðarbankans sem var og hét og einn stofnandi Iðnskólans sem nú kallast Tækniskólinn og átti húsið að Sóleyjargötu 3  . Voru þessi systkyni há vexti með mikil framstæð nef sem ég hefi síðan skilgreint sem vestfirsk nef . Var það eitt karakter einkenni í útliti þessa vinar míns að hann hafði myndarlegt nef sem heillaði mig við okkar fund og felldi ég ástir til hans og tókust með okkur kærleikar en ég hafði þekkt hann frá því fyrir mörgum árum í Kaupmannahöfn þar sem hann bjó á Islands Brygge : en ég seinna þóttist þekkja þarna með honum vestfirskt útitseinkenni . Varð þessi vinskapur mér hin mesta heilli og lít á sem mína lífsins gjöf og gæfu en þar náði ég að risa uppúr nöturlegri lífssögu .  Það kallast stundum að vera með bein í nefinu að eiga ákveðin og framtakssöm skapgerðareinkenni en það mætti segja að hjá honum fari saman vestfirskur uppruni í föðurkyni og danskt hertogakyn frá Fjóni við Óðinsvé í móðurkyn en kann kalst með réttu nafni Sir Henning Pold . Hér sjáum við mynd af honum fyrir miðju Sir Henning Poldvið útgáfu bókar um feril danska trúbadorsins Kim Larsen árið 2019 en Pold spilaði undir á bassa í hljómsveit hans .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ÖGRI

Höfundur

ÖGRI
ÖGRI

bloggari

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 528064099 1430895505130867 2203745228477154074 n
  • Burberry-Back-to-the-City-2025-002
  • 531494690 778601374666495 8198974658117962199 n
  • 530262218 778601467999819 6598559568677695527 n
  • 530222609 1218259087012014 1543505145579581019 n

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.8.): 17
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 113
  • Frá upphafi: 57798

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband