15.10.2018 | 17:05
Eru 300 milljónir svo hár kostnaður ? : BRAGGINN
Ég leit yfir myndir frá Bragginn Bistró og sá af þeim að vel er til vandað við uppfærslu þessarrar minjar ef mætti kalla svo í sem upprunalegustu mynd sem getur oft verið vandasamt og haft kostnað í för með sér . Nú er þetta orðið að mannvirki sem hefur fengið notagildi og fyllist af iðandi mannlífi og eru innréttingar greinilegast sem best gerist og tel ég að hafi tekist vel til og þessi endurbygging eigi eftir að standa lengi . Þá verður mér hugsað hvort 300 milljónir séu í raun svo hár kostnaður við varðveislu slíkrar söguminjar , eitt nauðaómerkilegt einbýlishús er verðmetið t.d. á 145 milljónir . Það hefur ekki verið vandi okkar Sjálfstæðismanna til þessa að fárast yfir kostnað þess sem vel er til vandað og á lengi að standa . Húrra BRAGGINN BISTRÓ !
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 53618
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.