23.7.2019 | 01:18
100 ár frá fæðingardegi föður míns ÁSMUNDUR JÓNATAN ÁSMUNDSSON
Í dag 23. júlí eru 100 ár frá fæðingardegi föður míns Ásmundur Jónatan Ásmundsson . Ásmundur var yngstur í hópi systkyna ; sonur Ásmundar Sigurðssonar kaupmanns og barnakennara í Grundarfirði . Elsti bróðir hans var Einar kenndur við SINDRI og starfaði Ásmundur mesta sína starfsævi við fyrirtæki hans og var síðast framkvæmdastjóri er starfseminn gekk undir heitinu Sindra Stál . Hann hafði numið rekstrarfræði við skólann á Hvanneyri . Þá var hann ritari í frímúrarareglunni Mímir . Eiginkona hans var Hanna Helgadóttir tæknifulltrúi fædd 1928 og hafði hann byggt hús í Stigahlíð þar sem fjölskyldan bjó . Börn Ásmundar eru : Ragnhildur húsfreyja , Sigrún iðjuþjálfi , Helgi myndlistarmaður , Ásmundur Páll bifreiðastjóri og Magnús Þór forstjóri Fjarðarál . Eiginmaður Sigrúnar var Guðbjartur Hannesson Heilbrigðis- og Velferðarmálaráðherra . Hann er nú látinn .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. júlí 2019
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 2
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 170
- Frá upphafi: 49798
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 97
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar