25.1.2019 | 10:58
Útsýni í Reykjavík
Útsýni er fagurt á fögrum degi í Reykjavík og eftirsótt er orðið að eiga svokallaðar útsýnisíbúðir sem eru á efstu hæðum hárra fjölbýlis bygginga . Í suðri umlykur Bláfjallahringurinn byggðina og í fjarska má greina Keilir og Straumsvíkina . Í noðri ber hæst Úlfarsfell og Esja sem blasir við og gerir Reykjavíkurborg að fögru bæjarstæði ; traust og stöðug einsog breitt bak og veitir borgarstæðinu gott skjól . Í heiðríkju má greina tignarlegann Snæfellsjökullinn í fjarskanum sem hefur allann þann kraft sem ein af sjö orkustöðvum jarðarkringlunnar getur borið . Og svo má víða sjá útá ægifagurt hafið þar sem líf undirdjúpanna liggur í hími aldanna . Ekki fá allir notið útsýniseiginda en allir búa við glugga og flestir svalir því birtan er ekki síður af dáyndi . Gott birtuflæði í húsnæði lyftir anda mannsins og veitir hugarfró og kyrrð sálarinnar og getur verið jafnmikil fegurð og stórkostlegt útsýni . Og á svölunum má anda að sér hreinu loftin sem er ein mesta auðlind Íslands . Máltæki segir að þú haldir lífi svo lengi sem þú dregur lífsandann .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2019 | 03:23
Glæsisýningar Hátískunnar/Haute Couture í PARÍS
Þegar tískuvikum herratískunnar lýkur yfir taka við glæsisýningar hátísku kvenna [ Haute Couture ] í París . Þangað er boðið fyrirfólki og hefðardömum og er hver kjóllinn model-saumur sem falur er til kaups fyrir drjúgann skilding enda oft ótrúleg vinna að baki við handsaum . Nokkuð mátti sjá um stalla í kjólum að þessu sinni sem hafa þá eiginleika að liðast um við lendahreyfingar þeirrar sem herlegheitin ber . Á meðfylgjandi myndum má sjá slík dæmi frá GIAMBATTISTA VALLI ( Giamba ) og ARMANI PRIVÉ .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 25. janúar 2019
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 38
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 223
- Frá upphafi: 50019
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 155
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar