31.10.2018 | 18:43
INGÓLFUR ÖRN ARNARSON myndlistarmaður opnar sýningu á jarðhæð Hafnarhúss
Næstkomandi laugardag þann 3. nóvember kl. 16.00 opnar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi sýning Ingólfs Arnar Arnarsonar myndlistarmanns sem hann kýs að nefna eftir salarkynnunum JARÐHÆÐ . Eftir nám í MHÍ laggði Ingólfur stund á nám í Maastricht Hollandi . Debut hans nokkrum árum eftir heimkomu var í miðsal Kjarvalsstaða og þar varð ljóst að þar fór listamaður sem hafði til að bera einstaka næmni . Líkt og búast má við í sýningu hans núna voru þar vegg relief sem vöktu mesta athygli mína fyrir að lýsa litrófi listamannsins sjálfs . Seinna tók hann að vinna af mikilli natni fíngerðar teikningar sem voru líkt og ofinn vefur og endurtók hann í sífellu myndina og fyllti með í tómarúmi sýningarsala . Var honum meðal annars boðið af bandaríska listamanninum Donald Judd til að hafa uppi myndir í sýningarými á hans vegum er kallast Chinati Foundation . Að þessu sinni kveðst hann leggja útfrá aðstæðum sem rými á jarðhæð Hafnarhúss hefur uppá að bjóða ; miklar steinsteyptar súlur og stórir gluggar og vonast með því til að vekja upplifun og skynhrif skoðandans .
31.10.2018 | 09:34
LENNY KRAVITZ prýðir forsíðu tímarits
Tónlistarmaðurinn LENNY KRAVITZ prýðir forsíðu vetrarheftis 2018 og vors 2019 tímaritsins Man About Town . Sá sem ljósmyndar hann er Mariano Vivanco og kynnir Kravitz merki á við SAINT LAURENT í sínum eiginn leðurbuxum . Hann segir í viðtali við tímaritið að tónlistin eigi ennþá hug hans allann .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 31. október 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 23
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 194
- Frá upphafi: 49975
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 156
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar