30.8.2019 | 05:00
Ungverskur fyrirsæti kynnir haust- og vetrarlínu RESERVED
Top fyrirsætinn ROBERTO SIPOS frá Ungverjalandi prýðir lookbook fyrir haust- og vetrarlínu 2019.20 herratískuvörunnar RESERVED . Ljósmyndari er Mateusz Stankiewicz . Einsog sjá má af myndunum er herralína þeirra litrík og klæðileg fyrir það sem koma skal til betur búinna karlmanna með hausti og vetri .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2019 | 08:01
Einn þekktasti karlfyrirsætinn í dag : FERNANDO CABRAL
FERNANDO CABRAL er frá Guinea Bissau og kom inn í heim fyrirsæta árið 2010 . Hann hefur grannt og spengilegt vaxtarlag og er í dag einn sá þekktasti í heimi fyrirsæta . Hann hefur gengið runway fyrir hönnuði á við Givenchy og Hermes , verið í auglýsingaherferðum fyrir Balmain og nú síðast Zara en má segja að ferill hans hafi náð hápunkti er hann prýddi myndir fyrir Tom Ford í auglýsingaherferð hans vor sumar 2018 . Þá skartaði honum á forsíðu VOGUE Portugal ekki svo alls fyrir löngu .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2019 | 11:09
Fyrirsætinn FILIP HRIVNAK myndaður í Kenýa
Slóvaski fyrirsætinn Filip Hrivnak var á dögunum myndaður í fallegu umhverfi þjóðgarða Kenýa fyrir auglýsingaherð herrafataframleiðandans AUTASON 2019 . Hann er jafnframt andlit línunnar Autason BLACK .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2019 | 06:07
Listakonan REBECCA HORN á ArtBasel
Þýska listakonan Rebecca Horn er fædd 1944 ; menntaðist við listaskólann í Hamborg en fluttist til New York 1970 og tók að vinna við list sína þar . Hún tók að vinna með hina líkamlegu stærðargráðu sem hún útvíkkaði og framlengdð með hjálp aðkomins efniviðar líkt og vængir og polýester strengir . Hún verður nú heiðurslistamaður Art Basel hátíðarinnar . Hér má sjá myndir af verkum hennar og vinnu með framlengingu mannslíkamans .
23.8.2019 | 23:06
Sonur Mick Jagger prýðir myndaþátt karlmannatísku
RAG & BONE tískuhönnuðirnir hafa fengið JAMES JAGGER leikara og tónlistarmann til að prýða myndaþátt um tískuhönnunn karlmannatísku þeirra árið 2019 . Er hann sonur fyrirsætunnar á áttunda áratugnum Jerry Hall og hins stórfræga Rokkstjörnu Mick Jagger . Nokkur svipur með þeim feðgum að sjá má .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2019 | 17:24
Trend í karlmannatískunni fyrir Veturinn 2019.20
Eitt sem mátti sjá í upphlaupi sýninga tískuhönnuða fyrir veturinn 2019.20 var að klæða saman jakkaföt og yfir þau dúnúlpu . Hér má sjá þrenn dæmi . Hæfir vel aðstæðum á Íslandi .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2019 | 12:25
Hvernig eiga Herrarnir að klæða sig í Haustið
Nú líður að hausti . Haustið á Íslandi er oftast vindasamt og því kemur góður vindfrakki - eða vindjakki sér vel fyrir karlmennina . Þá getur orðið vætusamt og því gott að búa að vatnsheldum fatnaði og skóm . En það þarf ekki að dúða sig því enn er nokkuð hlýtt í veðri , heldur bara klæða sig á léttum nótum, casual klæðaburður fer vel með herramönnum í stað mikils íburðar en gott er að gæta smekkvísi því litir dempast gjarnan í karlmannafatnaði með haustinu .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2019 | 11:54
LYF VIÐ HUNDAÆÐI : DATURA
Ég hefi rakið sögu mína hér í blogginu um einnkennilegt tilvik og aðkomu um sýkingu hundaæðis . Það er atburður sem gerist ekki hér á landi en í litlu þorpi á vesturströnd Ítalíu fyrir mörgum árum síðan . Fram á síðustu daga hefi ég borið einkenni þessa ; yfir mig ríða svokallaðar agressionir þegar ég er í einrúmi enn þann dag í dag og slæ ég þá frá mér . Þá hefi ég lýst vonbrigðum mínum um samskifti mín við heilbrigðisstarfsmenn sérstaklega á geðsviði Landspítala þar sem ég vill meina að aldrei hafi verið hlustað svo mikið sem á mig eða mér sýndur nokkur skilningur . Jafnvel hámenntuðustu menn eru þar að mínu viti illa að sér og næsta formyrkvaðir í fávisku sinni og hafa einblínt á þau geðrænu einkenni sem hafa fylgt og talið sig vera um til greiningar ; en hundaæði leggst í höfuð og heila þess sem fyrir því verður . Ef eitthvað hefur örlað fyrir skilningi hefur verið á að heyra að ´ Við getum ekkert hjálpað ´ . Nú er ég sjálfur orðinn upplýstari og hefi fengið í hendur fræðilega frásögn sem segir frá blómplöntunni - liljunni DATURA sem unninn sé afurð úr fræjum hennar sem slái á slík einkenni sem ég hef lýst og jafnvel séu heilun á hundaæði . Þegar ég reyni að útvega þetta rek ég mig á það að Lyfjaeftirlit Ríkisins leyfir ekki innflutning á þessarri afurð . Hundurinn sýkti sem um var að ræða var svokallaður úlfarakki en það er gaman að segja frá þvi að menn í Ukraínu sem þekkja til úlfa segja mér að úlfarnir sjálfir séu ekki mannígir og ráðist ekki á menn .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2019 | 08:08
Sýning danska listamannahópsins A-KASSEN í Kling & Bang
Kling & Bang sýningarýmið í Marshallhúsinu Granda hefur fengið hingað hóp fjögurra mætra danskra listamanna sem kalla sig A-KASSEN og nú sýna í rýminu . Nafnið A Kassen er tilvísun í daglaunasjóð danskra listamanna sem rekinn er sameiginlega af bönkum og sparisjóðum þar í landi til að styðja við þarlenda myndlistarmenn og performera . Sýningin ber yfirskriftina ´ Móðir og barn ´ sem leggst út sem tema sem unnið er útfrá . Dönsku listamennirnir leitast ekki við að draga upp madonnu mynd heldur fjalla um samband móður og barns og sýna líkt og sálfræðilega hlið uppvaxtar . Þar má í sýningunni sjá brot stofudjásns líkt og minningu ; og spor sem er mörkuð í grafinni víkkun gólfflatarins og minna á umkomuleysi barnsins . Þá hafa verið leiddar út leiðslur að gosbrunnamyndum svo vísað sé i uppsprettuna ; persónuleika barnsins sem mótast í sambandinu við móðurina . Framsetning er einföld og fagurfræðilega unninn , þá eru áberandi góð tök á tæknilegri úrvinnslu . Sýning sem vert er að mæla með til nánari skoðunar .
15.8.2019 | 07:26
Lettneskur fyrirsæti í haust- og vetrarlínu REISS
Lettneski fyrirsætinn JANIS ANCENS sem er þekktur í heimi karlmannatískunnar sýnir hér haust- og vetrarlínu 2019.20 merkisins REISS . Ef Janis kemur ekki frá bænum Ogri skammt undan Kænugarði í Lettlandi ; en nafnið virðist ekki óskylt íslenska staðarheitinu Ögur .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 4
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 189
- Frá upphafi: 49985
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 146
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar