16.3.2019 | 12:48
Listamaðurinn verður hluti af Listaverkinu
Hér má sjá mynd frá GARAGE listasafninu í Moskvu þar sem listamaðurinn er orðinn hluti af listaverkinu . Leggur hann útfrá sem kalla mætti frummynd naumhyggjunnar ´ Svartur ferningur ´ eftir MALEVICH en sú mynd hefur verið til sýnis á Listasafni Íslands ; þetta er ein þekktasta mynd seinni tíma listasögu heimsins .
Á fimmtudagskvöld stóð fataverkefni Rauða Krossins í samvinnu við 2.árs nema í fatahönnunn við Listaháskóla Íslands fyrir tiskusýningu sem fór fram í leiksviðssal skólans . Verkefnið er fólgið í því að nemendurnir vinna nýja hönnunn klæðnaðar úr gömlum vefnaði og notuðum klæðnaði og verða oft af hinar nýstárlegustu og frumlegustu flíkur svo jaðrar við hátísku því ungir nemendurnir hafa frjótt ímyndunarafl og eru fullir hugmyndaauðgi . Í Bretlandi er nú unnið í miklu átaki um að ósköpunum öllum af tískufatnaði sé ekki fargað en sé endurnýttur ; þá er einnig að aukast með tískuheiminum að notuð séu endurnýtanleg efni í fatnaðinn ´substainable fashion design ´.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. mars 2019
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar