21.6.2018 | 14:07
Að Ná ATHYGLI fyrir klæðaburð
Hér fylgir mynd af fyrirsæta sem er klæddur um nokkuð sem heitir AÐ BRJÓTA UPP stílinn eða Monotoníu í klæðaburði . Einfaldur viðhlutur við stílfærðann klæðaburð í t.d. öðrum og sterkum lit getur náð auganu ; dregið að þér athyglina fremur en að vera allur/öll flashie! og hrópandi áberandi . Slíkt leiðir jafnvel fremur hjá athyglina . Gjörið þið svo vel .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2018 | 07:34
Vinsælasti karlfyrirsætinn á Tískuvikum Herra
Einn vinsælasti karlfyrirsætinn á tískupöllunum þessar tískuvikur karlmannatískunnar er vafalaust hinn pólski MAX BARCZAK eða Maksymilian einsog hann heitir réttu nafni . Hann hóf feril sinn sumarið 2015 og hefur verið ótrúlega vinsæll meðal hinna fremstu síðan , þykir hafa látlaust yfirbragð og bera fríðleika . Hann er fæddur árið 1996 og því 21 árs að aldri .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2018 | 02:29
Parísartískuvika karlmannatísku opnar með sýningu VALENTINO
Hinn Ítalski Valentino varð goðsögn í lifanda lífi fyrir glæsilega hönnun sína á samkvæmiskjólum kvenna ekki hvað síst í rauðum lit sem var hans aðalsmerki . Hann lét af starfi sínu sem hönnuður vegna aldurs ( f. 1932 ) en merki undir hans nafni gerir út í París og við er tekinn sem listrænn stjórnandi PIERPAOLO PICCOLI .VALENTINO opnaði tískuviku karlamannatísku fyrir vor og sumar 2019 svo að kveður nú í París . Mikið af þeim klæðnaði sem var til sýningar var undir lógói merkisins og gjarnan fallegar illústrativ skreytingar sem minna helst á aldingarðinn Eden . Þá var nokkuð um fatnað í felulitum hermanna og mátti sjá síða létta frakka . Við voru borinn höfuðföt . Hér sjást nokkur sýnishorn frá sýningu Valentino í París .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. júní 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 16
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 200
- Frá upphafi: 49576
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 152
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar