26.3.2018 | 10:10
Vindátt hefur breytst í Reykjavík
Þar sem ég bý í fallegri íbúð hátt uppi eru suðursvalir og verönd þar sem þau fimm ár sem ég hefi búið þar hefur alltaf verið gott skjól og kyrrt . Undanfarna mánuði hefur varla verið farandi útá Svalirnar því nú hefur blásið kröftuglega og Nætt í Sífellu að því er virðist í Austurátt . Leiðir þá að líkum að Vindátt hafi Eitthvað breyst hér á Suðurlandi í Reykjavíkurborg frá því sem lengi hafði verið , vonandi þó aðeins tímabundið . Vonandi verður Sumarið Stillt og Sólríkt og Gott .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2018 | 08:07
Nýtt sýningarými í GEYSIR HEIMA Skólavörðustíg ; Kjallarinn - KORKIMON
Nýjasta sýningarrýmið í Reykvískri listaflóru er Kjallarinn að versluninni GEYSIR HEIMA . Verslunin Geysir var upphaflega í Aðalstræti við Hlaðvarpann á síðustu Öld og var eigandi hennar faðir Gunnar Gunnarsson sálfræðingur sem seinna gerðist Einkasafnari á Myndlistarverk . Nú stendur yfir í kjallararýminu sýning Melkorka Katrín sem kallar sig listakonan KORKIMON sem lengst af hefur búið og menntast í New York. Þar eru nokkrir nýstárlegir Skúlptúrar þar sem hversdagsleg efni fá nýtt og Absúrd samhengi . Þá má sjá nokkuð Óræðar teikningar þar sem líkt og hefur lengi loðað við Íslenska myndlistarmenn að ekki er dreginn skörp lína heldur verður af einhverskonar þreifandi Pár . Er að sjá í teikningunum naktar manneskjur í fígaratívri Anatomíu Torso . Virðast þær vera að hverfa að Ástarleik . Hvað sem hverju líður verður þetta að kallast Frumleg og Góð Frumraun hjá þessari Ungu Listakonu .
Bloggfærslur 26. mars 2018
Um bloggið
ÖGRI
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 18
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 163
- Frá upphafi: 49091
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar